Kæru félagar, það eru mikilvæg tímamót í sögu Félags íslenskra rafvirkja (FÍR) þar sem félagið verður 100 ára á árinu, nánar tiltekið 4. júní 2026.
Saga félagsins er merkileg fyrir margar sakir og eigum við margt af því sem hefur áunnist að þakka þeirri elju og staðfestu sem forverar okkar sýndu.
Félagið hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt og stendur styrkum fótum í dag hvort sem um er að ræða fjárhagslega eða félagslega.
Á tímamótum sem þessum er mikilvægt að horfa til fortíðar; líta yfir farinn veg. Því hefur félagið ákveðið að gefið verði út veglegt afmælisrit fyrir afmælisdaginn sjálfan, 4. júní.
Afmælisgjöf:
Einnig verður félögum FÍR gefin afmælisgjöf í tilefni af afmælisárinu og geta félagar valið úr þremur mismunandi gjöfum. Markmiðið er að allir geti valið eitthvað við hæfi. Í tilefni þess hefur stjórn félagsins ákveðið að gefa félagsmönnum veglegar gjafir sem merktar eru merki félagsins. Um þrjár gjafir er að velja; töskusett úr leðri, einangrað topplyklasett eða tækjapakka sem samanstendur af hleðslubanka og ferðakló.
Þið getið valið ykkur gjöf með því að smella hér.
Viðburðir:
Margir viðburðir verða á dagskrá félagsins á afmælisárinu um allt land. Hér að neðan er upptalning á þeim en nánari upplýsingar og skráningar verða sendar út síðar:
- Kvöldskemmtun í Austurbæjarbíói Reykjavík
- Afmælisviðburður á afmælisdag félagsins að Stórhöfða 31
- Fjölskylduhátíð RSÍ þar sem FÍR mun koma veglega að
- Kvöldskemmtun á Egilsstöðum
- Kvöldskemmtun á Sauðárkróki
- Kvöldskemmtun á Ísafirði
Einnig verða margir smærri viðburðir hér og þar fyrir okkar fólk og fjölskyldur þeirra.
Við hvetjum félagsfólk til að fylgjast vel með miðlum félagsins á árinu þar sem ýmislegt verður í gangi en einnig verða sendar út upplýsingar um viðburði og aðrar uppákomur á netföng félagsmanna og í SMS-skilaboðum. Því hvetjum við fólk einnig til þess að uppfæra tengiliðaupplýsingar (netföng og símanúmer) á mínum síðum.
Það er von okkar að afmælisárið verði frábært og að við getum hitt sem flesta félaga um land allt.
Fyrir hönd stjórnar FÍR
Andri Reyr Haraldsson formaður.
