Við ætlum að halda fjölskylduhátíð við Stórhöfða, laugardaginn 5. september kl. 12:00 og bjóða félagsfólki FÍR og fjölskyldum þeirra að koma og eiga skemmtilega stund saman. Það verður heitt á grillinu og fjöldi skemmtiatriða fyrir alla.
Glæsileg dagskrá verður á boðstólnum auk veglegra veitinga.
Tónlist og skemmtiatriði með Leikhópnum Lottu
Emmsje Gauti tryllir lýðinn
Villi vísindamaður heldur utan um skemmtun og uppákomur
Sirkus Íslands mætir með allskonar skemmtileg atriði
Andlitsmálning
Blaðrarinn gerir blöðrudýr
Hoppikastalar
Rafmagnsþrautir í skemmunni
Sjóðheitur hamborgari, drykkir, snakk, popp og ljúffeng kaka
Valdís ísvagn – kúlar ís fyrir alla
Hlökkum til að sjá ykkur á Stórhöfða og njóta þess að eiga góða stund saman með fjölskyldunni!

