Lífskjarasamningur SA og aðildarfélaga ASÍ hvílir á forsendum sem ekki stóðust fullkomlega þar sem
stjórnvöld efndu ekki öll fyrirheit í yfirlýsingu sinni dags. 4. apríl 2019.
Samninganefnd Alþýðusambands Íslands og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins hittust á fundi um framhald Lífskjarasamningsins, en bregðist forsendur getur hvor aðili sagt honum upp fyrir
kl. 16. þann 30. september.
Á fundi aðila kom fram vilji af beggja hálfu til þess að samningar standi og halda þeir því gildi sínu þar
til þeir renna út þann 1. nóvember 2022.

Deila frétt: