Kjarasamningar voru undirritaðir í dag eftir langt og strangt samningsferli.
Fagfélögin, MATVÍS, VM og RSÍ, undirrituðu í dag nýjan langtímasamning við Samtök atvinnulífsins. Samningurinn er í öllum aðalatriðum sambærilegur við þann samning sem skrifað var undir á fimmtudag. Hann gildir frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028.
Samningurinn kveður á um 3,25% afturvirka launahækkun frá 1. febrúar síðastliðnum. Lágmarkshækkun launa er 23.750 krónur. Næstu þrjú ár verður árleg hækkun launa 3,5%. Til viðbótar getur komið til greiðslu kauptaxtaauka og framleiðniauka á samningstímanum.
Sjá má nánar á vef rafis.is
