Lagabreyting sem verður lögð fyrir á aðalfundi FÍR 17.04.2026.
Ársreikningur og skýrsla verða birt eftir helgi.
Þessi breyting gerir það að verkum að þegar formaður er í kjöri fylgir meirihluti stjórnar eins og viðtekin venja er.
Lagabreyting lögð fyrir aðalfund FÍR 17.04.2026
Gr 23 fyrir breytingu
Stjórn félagsins skipa sjö menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og þrír meðstjórnendur. Formaður, ritari og einn meðstjórnandi skulu kosnir til tveggja ára annað árið og varaformaður, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur til tveggja ára hitt árið.
Gr 23 eftir breytingu
Stjórn félagsins skipa sjö menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og þrír meðstjórnendur. Formaður, ritari og tveir meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára annað árið og varaformaður, gjaldkeri og einn meðstjórnandi til tveggja ára hitt árið.
