Samkvæmt 37. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja
skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör stjórnar og trúnaðarráðs.
Með hliðsjón af framansögðu og 34 gr. tilkynnist hér með að framboðsfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 16.00 föstudaginn 16. febrúar 2024.
Skila ber tillögum ásamt meðmælum fyrir þann tíma á skrifstofu félagsins. Kosið verður um formann, ritara, einn meðstjórnanda og níu fulltrúa í trúnaðarráð.
Hverju framboði skal fylgja skrifleg meðmæli minnst 18 fullgildra félagsmanna.
Reykjavík 6. janúar 2024
Stjórn Félags íslenskra rafvirkja

