Samkvæmt 37. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja
skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör stjórnar og trúnaðarráðs.

Með hliðsjón af framansögðu og 34 gr. tilkynnist hér með að framboðfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 16:00 mánudaginn 17. febrúar 2025.

Skila ber tillögum ásamt meðmælum fyrir þann tíma á skrifstofu félagsins. Kosið verður um varaformann, gjaldkera, tvo meðstjórnendur og níu fulltrúa í trúnaðarráð

Hverju framboði skal fylgja skrifleg meðmæli minnst 18 fullgildra félagsmanna.

Reykjavík 20. janúar 2025
Stjórn Félags íslenskra rafvirkja

Deila frétt: