Samkvæmt 37. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja
skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör stjórnar og trúnaðarráðs.

Með hliðsjón af framansögðu og 34 gr. tilkynnist hér með að framboðfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 16:00 mánudaginn 16. febrúar 2026.

Skila ber tillögum ásamt meðmælum fyrir þann tíma á skrifstofu félagsins. Kosið verður um formann, ritara, einn meðstjórnanda og níu fulltrúa í trúnaðarráð.

Hverju framboði skal fylgja skrifleg meðmæli minnst 18 fullgildra félagsmanna.

Reykjavík 30. janúar 2026
Stjórn Félags íslenskra rafvirkja

Deila frétt: