
Vilt þú vera með?
Langar þig að taka þátt í starfi FÍR?
Langar þig til að hafa áhrif innan hreyfingarinnar þá geturu orðið eftir farandi
- Stjórnarmaður
- Sitja í trúnaðarráði
- Vera trúnaðarmaður í þínu fyrirtæki

Hvernig á að verða stjórnarmaður í FíR
Stjórn félagsins skipa sjö menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og þrír meðstjórnendur. Formaður, ritari og einn meðstjórnandi skulu kosnir til tveggja ára annað árið og varaformaður, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur til tveggja ára hitt árið.
Hvernig fer ég í trúnaðarráð?
Stjórn félagsins og átján félagsmenn skipa trúnaðarráð félagsins. Kjósa skal níu menn í trúnaðarráð til tveggja ára það ár sem formaður er í kjöri og aðra níu menn til tveggja ára það ár sem varaformaður er í kjöri.
Hvernig verð ég trúnaðarmaður míns fyrirtækis?
Trúnaðarmaður er kosinn innan fyrirtækja og sér um að
- Hafa eftirlit með því að atvinnurekandi fari eftir kjarasamningum
- Meta hvaða ákvæðum kjarasamninga og reglna er æskilegt að breyta
- Taka við kvörtunum frá starfsmönnum og vera talsmaður starfsmanna
- Vera fulltrúi stéttarfélagsins á vinnustað
- Taka á móti nýjum starfsmönnum, kynna þeim starfskjör og réttindi.
Fylgstu með okkur!